Leitarhundar Slysavarnarfélagsins Landsbjargar
Menu
Þá er síðustu víðavangsúttekt 2017 lokið.
Í þetta sinn var gist í sumarbúðunum Ölveri undir Hafnarfjalli sem er frábær aðstaða í alla staði! Æft var inn í Leirársveit og inn við Geitabergsvatn. Þau teymi sem náðu prófum á úttektinni voru: Stefán Karl og Svúnki - A endurmat 4 Björn og Joey - A endurmat 2 Lovísa og Snerpa - A endurmat Arnar Logi og Skotta - A Þorgils og Pjakkur - A Dóra og Orka - B Helgi og Neró - B Við viljum þakka Geirabakarí í Borgarnesi og Myllunni kærlega fyrir að hafa styrkt okkur með brauði og bakkelsi. Það er fátt betra en gott nesti eftir erfiða leit í krefjandi lanslagi. Einnig þökkum við fyrir það óeigingjarna starf sjálfboðaliða sem komu sérstaklega á úttektina til að liggja úti í felum fyrir okkur. Án ykkar væri þetta ekki hægt! Vetrarnámskeið Leitarhunda verður haldið að þessu sinni á suðurlandi dagana 17.-20. mars 2016. Á vetrarnámskeiði eru hundateymi tekin út með tilliti til getu við að finna fólk í snjóflóði. C-próf taka þeir sem eru að stíga sín fyrstu skref og ákvarðar það um hvort hundurinn og stjórnandinn þyki vænlegir til að halda áfram þjálfun. B-próf taka þeir sem tóku C-próf fyrir ári síðan og hafa æft hundana sína nógu vel til að geta treyst á þá í útkalli. A-próf taka svo þeir sem eru lengra komnir og fara þau hundateymi á forgangslista hundaútkalla. Þeir hundar sem ná A-prófi eru flokkaðir sem fullþjálfaðir, þó alltaf þurfi að viðhalda þjálfun alla tíð. A-hundar þurfa að mæta í úttekt annaðhvert ár til að halda réttindum sínum. Aðalfundur Leitarhunda SL er haldin samhliða vetrarnámskeiði ár hvert og í ár er þar engin undantekning. |
HöfundarFréttaritarar / blogghöfundar eru hinir ýmsu meðlimir Leitarhunda SL Tímabil
July 2018
Flokkar |