Leitarhundar Slysavarnarfélagsins Landsbjargar
Menu
Leitarhundar voru kallaðir út klukkan þrjú í nótt til að leita af ferðalöngum. Bifreið hafði verið skilið eftir í Borgarfirði. Lögregla óskaði eftir hundum til leitar að þeim sem höfðu bílinn til umráða upp með Hvítá og á svæðinu. Þyrla Landhelgisgæslunar fundu ferðamennina heilu á húfi í tjaldi. Eitt teymi frá Hafnarfirði var lagt af stað, Ásbjörn og Mýra í Björgunarsveit Hafnarfjarðar ásamt bílstjóra og voru þeir langt komnir þegar þyrla Landhelgisgæslunar fundu ferðamennina heila á húfi í tjaldi. Leitarhundar fengu útkall að kvöldi 25.ágúst þar sem konu af asískum uppruna var saknað úr áætlunarferð um Eldgjá á svæði 16. Tveir hundar frá Leitarhundum mættu í Hólaskjól þá um nóttina, en hefja átti leit við sólarupprás. Betur fór en á horfðist þar sem leitin var afturkölluð kl.3 en þá kom í ljós að konan hafði farið til byggða með áætlunar-rútunni.
Hundateymi sem mættu voru Dóra með Orku (Sigurvon Sandgerði) og Ási með Mýru (Ársæll Reykjavík). Theodór mætti án hunds, en Hugi er í veikindaleifi. Þann 17. júlí var óskað eftir aðstoð vegna týndra ferðamanna uppvið Eyjabakkajökul. Eitt teymi frá Leitarhundum SL tók þátt í leitinni. Björn og Joey úr Björgunarsveitinni Ársól fóru frá Reyðarfirði og leituðu frá klukkan 22 – 04 og voru svo rétt að hefja leit að nýju þegar fólkið fannst. Björgunarsveitir víðsvegar um landið voru kallaðar út aðfaranótt fimmtudags 10. nóv. til leitar af sænskum ferðamanni á Fimmvörðuhálsi. Leitin breyttist síðar þar sem bíll mannsins fannst við Sólheimajökul. Alls voru tólf teymi frá Leitarhundum sem tóku þátt í leitinni dag og nótt við mjög erfiðar aðstæður. Ferðamaðurinn sem leitað var að fannst látinn á Sólheimajökli um hádegi, laugardaginn 12. nóv. Björgunarsveitir voru kallaðar út til leitar að þremur mönnum sem voru á göngu við Klukkutinda norðan Laugavatns. Talið var að mennirnir hefðu lagt af stað deginum áður og ekki skilað sér heim um kvöldið. Mennirnir eru feðgar, faðirinn á áttræðisaldri en hinir um fimmtugt og sextugt. Mennirnir fundust heilir á húfi. Tvö teymi frá Leitarhundum voru á leið á vettvang: Theodór & Hugi og Jón Hörður & Skuggi.
|
HöfundarFréttaritarar / blogghöfundar eru hinir ýmsu meðlimir Leitarhunda SL Tímabil
July 2018
Flokkar |